Guðmundur Löve hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SÍBS og tók formlega við starfinu 1. apríl síðastliðinn, að því er kemur fram í tilkynningu. Guðmundur er fæddur 1967, er með MBA gráðu frá Viðskiptaháskólanum í Osló og segir í tilkynningunni að hann hafi baki langa reynslu af fyrirtækjastjórnun hér á landi og erlendis.
Eiginkona Guðmundar er Hrefna Björg Þorsteinsdóttir arkitekt og eiga þau tvö börn.