Auður Capital tapaði 76 milljónum á árinu 2010

Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir, stofnendur Auðar Capital.
Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir, stofnendur Auðar Capital.

Auður Capital tapaði 76 milljónum króna á árinu 2010, en ársreikningur félagsins var samþykktur á aðalfundi á miðvikudaginn. Félagið, sem er skuldlaust, hefur 88,4% CAD-eiginfjárhlutfall, en eigið fé nemur rúmum einum milljarði króna.

„Árið 2010 einkenndist af auknum umsvifum og fjárfestingu í uppbyggingu starfseminnar. Verulegur vöxtur varð á eignum í stýringu, sem hækkuðu úr 17 milljörðum í 30 milljarða í árslok og þóknanatekjur jukust um 70% á milli ára," segir m.a. í tilkynningu frá Auði.

„Þrátt fyrir takmarkað úrval fjárfestingarkosta náðist afar góð ávöxtun á eignir í stýringu. AUÐUR I, fagfjárfestasjóður, fjárfesti í hlutafé í sjö fyrirtækjum á árinu. Fyrirtækjaráðgjöf kom að ráðgjöf, fjárhagslegri endurskipulagningu og verðmati á þriðja tug fyrirtækja og fasteignaráðgjöf var sett á laggirnar,“ segir enn fremur.

„Ég er á heildina litið sátt við árangur ársins“, segir Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar. „Þetta er annað heila starfsár okkar og frá upphafi gerðum við stjórnendur og hluthafar félagsins ráð fyrir því að uppbygging tæki bæði tíma og kallaði á fjárfestingu. Við höfum lagt mikla áherslu á að byggja upp tekjustofna til framtíðar og það hefur tekist vel. Viðskiptavinum hefur fjölgað jafnt og þétt og eignir í stýringu vaxið að sama skapi. Við njótum trausts ánægðra viðskiptavina sem við teljum skipta sköpum. Ennfremur fjárfesti AUÐUR I í áhugaverðum fyrirtækjum á árinu sem við teljum að muni skila okkur tekjum til lengri tíma litið.“

 Á aðalfundinum var stjórn félagsins kjörin. Stjórnina skipa: Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, David Adams og Þóranna Jónsdóttir sem kemur ný inn í stjórn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK