Eignaleigur sameinaðar Landsbanka

Skrifstofur Avant við Suðurlandsbraut.
Skrifstofur Avant við Suðurlandsbraut. mbl.is/Jón Pétur

Tvö dótturfélög Landsbankans á sviði eignaleigu, SP-Fjármögnun og Avant, verða sameinuð bankanum á næstunni. Félögin hafa verið alfarið í eigu Landsbankans um nokkurt skeið. 

Félögin verða starfrækt í sjálfstæðri rekstrareiningu sem mun heyra beint undir bankastjóra Landsbankans. Segir bankinn, að staða viðskiptavina Avant og SP-Fjármögnunar muni ekkert breytast vegna samrunans.
 
Tæplega sjötíu starfsmenn munu starfa í hinni nýju rekstrareiningu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun undir hvaða vörumerki hún mun starfa. Fyrirhugað er að samrunanum ljúki á haustmánuðum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK