Icelandair selur flugvélar

Boeing, B787 Dreamliner
Boeing, B787 Dreamliner mbl.is/Baldur

Norska flugfélagið Norwegian hefur gengið frá kaupum á þremur Boeing Dreamliner-flugvélum af Icelandair.

Er greint frá þessu á á norsku fréttaveitunni E24, sem hefur fregnirnar eftir kauphallartilkynningu frá Norwegian. Um er að ræða rétt til að kaupa þrjár 787-8 Dreamliner-vélar af Boeing-verksmiðjunum. Tvær vélanna munu berast Norwegian á fyrri helmingi ársins 2013 og sú þriðja snemma árs 2015.

Í ársbyrjun 2005 samdi Icelandair um kaup á fimm Dreamliner-vélum, sem áttu að berast félaginu á árunum 2010-2013. Nokkur dráttur hefur orðið á afhendingu vélanna.


mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK