Fyrirtæki eiginmanns formanns slitastjórnar sér um sölu

Ráðgjafafyrirtækið Arctica Finance hefur verið fengið til að sjá um sölu á 94% hlut slitastjórnar Byrs sparisjóðs í nýja Byr. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins að eiginmaður formanns slitastjórnarinnar er framkvæmdastjóri Arctica Finance.

Tilkynnt var í vikunni, að sala slitastjórnar Byrs á um 94% hlut sínum í sparisjóðnum að hluta eða að öllu leyti muni hefjast með formlegum hætti í næstu viku. Fram kom í fréttum Stöðvar 2, að MP banki hefur m.a. sýnt áhuga á að kaupa þennan hlut.

Formaður slitastjórnar Byrs er Eva Bryndís Helgadóttir, lögfræðingur hjá Mandat. Fram kom í fréttum Útvarpsins, að Arctica Finance hafi verið stofnað af hópi fyrrverandi starfsmanna Landsbankans. Einn þeirra sé Stefán Þór Bjarnason, eiginmaður Evu Bryndísar, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri Arctica.

Í stjórn Arctica Finance eru  Ástráður Haraldsson, sem starfar á lögmannsstofunni Mandat. Formaður stjórnarinnar er Bjarni Þórður Bjarnason, sem var forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans fyrir hrun og er móðurbróðir Evu Bryndísar. Þriðji stjórnarmaðurinn er María Rúnarsdóttir.

Haft var eftir Jóni Finnbogasyni, forstjóra Byrs,  að fáir hafi komið til greina í þetta verk. Menn hafi verið að sækjast eftir starfskröftum sérfræðinga og Arctica Finance búi yfir þeirri þekkingu sem til þarf.

Tekið var fram í fréttum RÚV að það var stjórn Byrs, en ekki slitastjórnin eða Eva Bryndís, sem tóku hina formlegu ákvörðun um að fá Arctica Finance til verksins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK