Ríkið gefur út dollarabréf með 325 punkta álagi

Staða Icesave-deilunnar virðist ekki hafa hamlað aðgengi ríkisins að erlendu …
Staða Icesave-deilunnar virðist ekki hafa hamlað aðgengi ríkisins að erlendu lánsfjármagni ef marka má Barclays. Kristinn Ingvarsson

Skuldabréfaútgáfa íslenska ríkisins mun hefjast í þessari viku samkvæmt upplýsingum frá Barclays Capital. Ákveðið hefur verið að gefa út skuldabréf í Bandaríkjadölum til fimm ára. Verðmæti útgáfunnar nemur á bilinu 500 milljónum til eins milljarðs Bandaríkjadala. Orðrómur er um að vaxtaálag ofan á LIBOR-vexti verði á bilinu 325-370 punktar.

Álagið er hærra en skuldatryggingaálagið á íslenska ríkið um þessar mundir en það er um 200 punktar. Hinsvegar er það mat sérfræðinga sem mbl.is hefur rætt við að kjörin á útgáfunni hljóti að teljast vel ásættanleg, ekki síst með hliðsjón af stöðu mála hér á landi og erfiðu árferði á mörkuðum erlendis vegna skuldakreppunnar á evrusvæðinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK