Hræringar á mörkuðum

Reuters

Miklar hræringar hafa verið á hlutabréfamörkuðum í morgun líkt og í gær. Fjárfestar virðast óttast að efnahagsástandið í heiminum eigi eftir að versna þrátt fyrir samkomulag á Bandaríkjaþingi um að hækka skuldaþak ríkissjóðs. Gullverð hefur aldrei verið jafn hátt og nú.

Segja sérfræðingar að erfið skuldastaða nokkurra evru-ríkja og Bandaríkjanna sé að hafa áhrif á fjárfesta þar sem mikil óvissa ríki um framhaldið.

Í Lundúnum lækkaði FTSE vísitalan um 1,10% í morgun og DAX vísitalan í Frankfurt lækkaði um 0,80%. Í París lækkaði CAC vísitalan um 0,86% en í Madrid hækkaði vísitalan um 0,28%.

Á gjaldeyrismarkaði hefur evran hækkað gagnvart Bandaríkjadal og á gullmarkaði var únsan af gulli seld á 1.672,95 dali sem er hæsta verð sem fengist hefur fyrir gull í sögulegu samhengi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK