Bankar leiða fallið

Verðbréfamiðlarar hafa haft í nógu að snúast í dag
Verðbréfamiðlarar hafa haft í nógu að snúast í dag Reuters

Bankar leiða fallið á evrópskum og bandarískum hlutabréfamörkuðum í dag en meðal annars lækkuðu hlutabréf franska bankans Sociéte General um rúm 20% um tíma. Þegar viðskiptum lauk í kauphöllinni í París nam lækkun CAC vísitölunnar 5,45%. Ekkert félag hækkaði en SocGen lækkaði mest eða um tæp 15%.

Í Madríd lækkaði hlutabréfavísitalan um 5,49% og hefur ekki verið lægri síðan 1. apríl 2009. Í Mílanó lækkaði aðalvísitalan um 6,65%.

Í Lundúnum lækkaði FTSE-100 vísitalan um 3,05% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 5,13%. Í Sviss lækkuðu hlutabréf um 4,12%.

Dow Jones vísitalan í Bandaríkjunum hefur lækkað um 4,11% en þar hafa hlutabréf banka lækkað mikið. Meðal annars hefur Bank of America lækkað um 11,1% og Citigroup um 9,8%. Wells Fargo hefur lækkað um 7,3%, Goldman Sachs um 8,1% og  Morgan Stanley um 8,4%.


mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK