Tryggir bönkum greiðslugetu

Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, á blaðamannafundinum í morgun.
Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, á blaðamannafundinum í morgun. Reuters

Seðlabanki Evrópu er tilbúinn til að tryggja bönkum á evrusvæðinu þá greiðslugetu sem þeir þurfa, að sögn Jean-Claude Trichet seðlabankastjóra í dag.

„Við erum tilbúnir ... við erum mjög áhugasamir um að veita greiðslugetu,“ sagði Trichet á fréttamannafundi sem bankinn hélt eftir að tilkynnt var um óbreytta stýrivexti upp á 1,5%.

Trichet varaði einnig við „þrengri“ aðstæðum til fjármögnunar, en lagði áherslu á að greiðslugeta væri ekki áhyggjuefni fyrir bankakerfið í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK