Landsbankinn gæti greitt ríkinu 50 milljarða króna arð

Vel var mætt á morgunverðarfund SA þar sem kynnt var …
Vel var mætt á morgunverðarfund SA þar sem kynnt var nýtt rit SA ásamt því að ýmsir stjórnendur ræddu horfur í efnahagslífinu. mbl.is/Ómar

Landsbankinn er með allt of hátt eiginfjárhlutfall og gæti auðveldlega greitt ríkinu 50 milljarða króna arð. Staða bankans yrði eftir sem áður mjög sterk. Þetta kom fram í erindi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins (SA), á morgunverðarfundi samtakanna í Hörpu í gær.

Hann sagði hátt eiginfjárhlutfall bankanna auka umtalsvert þörf þeirra fyrir vaxtamun og þjónustutekjur. „Hættan er sú,“ að sögn Vilhjálms, „að bankarnir þurfi að viðhalda 5% vaxtamun til lengri tíma.“

Vilhjálmur sagði að verulegur skortur væri á því af hálfu stjórnvalda að einhver framtíðarsýn um fjármálamarkaði væri mörkuð.

Fram kom í máli Vilhjálms að það væri rík þörf á eigendum sem hugsuðu um hag bankanna. Hann telur að ríkisstjórnin ætti af þeim sökum að fara að huga að því að selja hlut sinn í Landsbankanum. Í þeim efnum væri mjög æskilegt ef fleiri en einn íslenskur banki væri í eigu erlendra aðila.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK