Aukakostnaður fyrir tryggingarfélag

Fjármálaeftirlitið hefur sent tryggingarfélögunum bréf vegna Lúganósamningsins svonefnda.
Fjármálaeftirlitið hefur sent tryggingarfélögunum bréf vegna Lúganósamningsins svonefnda. mbl.is/Eyþór

Reglur samkvæmt ákvæðum svonefnds Lúganósamnings, sem Ísland á aðild að síðan í vor, geta haft í för með sér töluverðan kostnað fyrir innlend tryggingarfélög. Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins.

Fjármálaeftirlitið, FME, hefur sent íslenskum vátryggingafélögum og vátryggingamiðlurum dreifibréf í tilefni ákvæða í Lúganósamningnum, sem var fullgiltur fyrir Íslands hönd hinn 1. maí sl. Aðilar samningsins, auk Íslands eru aðildarríki Evrópusambandsins, Noregur og Sviss.

Samkvæmt ákvæðum laganna getur vátryggingataki eða vátryggður lögsótt vátryggjanda frá landi sem er aðili samningsins í eigin heimalandi. Í því felst m.a. að íbúar aðildarlanda sem orðið hafa fyrir tjóni þar sem íslensk vátryggingafélög eru vátryggjandi, hvort sem tjónið verður á Íslandi eða annars staðar, geta stefnt viðkomandi vátryggingafélagi fyrir dómi til greiðslu bóta í sínu heimaríki. Reglurnar fela því í sér aukna neytendavernd fyrir íbúa aðildarlandanna vegna bótakrafna gagnvart vátryggingafélögum í öðru aðildarríki, segir á vef FME.

Reglurnar geta sem fyrr segir haft töluverðan kostnað og umsýslu í för með sér fyrir innlend vátryggingafélög. Fjármáleftirlitið hefur því beint því til vátryggingafélaga og vátryggingamiðlara að kynna sér efni framangreindra laga og meta hvort tilefni er til sérstakra ráðstafana vegna þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK