Viðskipti
| mbl
| 5.12.2011
| 15:28
| Uppfært
16:42
Ráðinn til Íslandsbanka
Jón Finnbogason, fyrrverandi forstjóri Byrs hf., hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.
Framkvæmdastjóri er Una Steinsdóttir. Jón er lögmaður að mennt og hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1998. Síðustu þrjú ár hefur hann starfað hjá Byr sparisjóði og síðar Byr hf. Jón var áður sjóðsstjóri sérhæfðra skuldabréfasjóða á eignastýringasviði Kaupþings. Þá hefur hann verið formaður íþróttafélagsins Gerplu frá árinu 2006.
Jón er giftur Lindu Björk Logadóttur og eiga þau fimm börn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















