7,9 milljarða afgangur

Útflutningur í nóvember var mun meiri en innflutningur.
Útflutningur í nóvember var mun meiri en innflutningur. mbl.is/Golli

Vörur voru fluttar út í nóvember fyrir 53,5 milljarða króna og inn fyrir 45,6 milljarða króna.  Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,9 milljarða króna, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Er það ívið meira en bráðabirðgatölur, sem birtar voru í desember, sýndu.

Í nóvember í fyrra voru vöruskiptin hagstæð um 7,2 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 voru fluttar út vörur fyrir 566 milljarða króna en inn fyrir 468,6 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, nam 97,5 milljörðum, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 105,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður, að sögn Hagstofunnar. 

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings tæpum 59 milljörðum eða 11,6% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 40,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,3% meira en á sama tíma árið áður. 

Útfluttar iðnaðarvörur voru 54,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,7% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og afurða áls, og í útflutningi sjávarafurða, aðallega á frystum heilum fiski.

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 67 milljörðum eða 16,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og fjárfestingarvöru.

Tilkynning Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK