Viðskipti
| mbl
| 23.1.2012
| 9:04
| Uppfært
11:06
Kaupmáttur launa hefur hækkað um 3,7%
Vísitala kaupmáttar launa lækkaði um 0,1% í desember frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,7%, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.
Launavísitala í desember 2011 er 418,2 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,2%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















