2% samdráttur á Ítalíu í ár

Mario Monti er forsætisráðherra Ítalíu.
Mario Monti er forsætisráðherra Ítalíu. MARCELLO PATERNOSTRO

Seðlabanki Ítalíu spáir því að um 2% samdráttur verði í efnahagslífi Ítalíu á þessu ári. Ignazio Visco seðlabankastjóri segir Ítali hafa þörf fyrir nýja sýn á vandann ef þeim eigi að takast að ráða við skuldakreppuna.

Visco segir að samdrátturinn á Ítalíu verði verulegur á þessu ári. Hann segist hins vegar ekki telja að ástandið eigi eftir að versna frekar. Ef skuldatryggingarálag lækki muni staðan fara að batna í lok ársins.

Ítalía er eitt skuldugasta ríki Evrópu og mun skuldugra en Spánn. Viðvarandi halli hefur verið á ríkissjóði í mörg ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK