Frakkar lækka eldsneytisverð tímabundið

AFP

Frönsk stjórnvöld hafa í hyggju að lækka eldsneytisverð tímabundið um sex sent í því skyni að létta á bifreiðaeigendum sem hafa orðið illa fyrir barðinu á hækkandi verðlagi. Þetta er haft eftir fjármálaráðherra Frakklands, Pierre Moscovici, á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph.

Yfirlýsing þess efnis kom frá ráðherranum eftir fund með forsvarsmönnum olíufélaga en gert er ráð fyrir að slík tímabundin lækkun eldsneytisverðs kosti franska ríkið um 300 milljónir evra. Gert er ráð fyrir að stjórnvöld læggi álögur sína um þrjú sent og olíufélögin sína álagningu um sömu upphæð.

Rifað er upp í fréttinni að forseti Frakklands, Francois Hollande, hafi heitið því að hafa stjórn á verði á eldsneyti í kosningabaráttu sinni fyrr á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK