Vestmannaeyjabær vill fá svar fyrir föstudag

Vestmannaeyjabær hefur birt Síldarvinnslunni og Magnúsi Kristinssyni áskorun um framlagningu forkaupsréttartilboðs vegna sölu Bergs-Hugins ehf. Verði ekki orðið við áskoruninni fyrir kl. 12 á föstudag  áskilur Vestmannaeyjabær sér rétt til að höfða mál fyrir dómstólum.

Hinn 30. ágúst sl. var tilkynnt í fjölmiðlum um sölu á Bergi-Hugin ehf., Vestmannaeyjum, til Síldarvinnslunnar hf., Neskaupstað. Um var að ræða sölu á öllum eignarhlutum í félaginu en það er eigandi tveggja fiskiskipa, Bergeyjar VE-544 og Vestmannaeyjar VE-444, og 5.000 þorskígildistonna.

Í 3. mgr. 12. gr. laga 116/2006 segir:

„Eigi að selja fiskiskip, sem leyfi hefur til veiða í atvinnuskyni, til útgerðar sem heimilisfesti hefur í öðru sveitarfélagi en seljandi á sveitarstjórn í sveitarfélagi seljanda forkaupsrétt að skipinu.

Forkaupsréttur skal boðinn skriflega þeirri sveitarstjórn sem hlut á að máli og söluverð   og aðrir skilmálar tilgreindir á tæmandi  hátt.

Sveitarstjórn skal svara forkaupsréttartilboði skriflega innan fjögurra vikna frá því henni berst tilboð og fellur forkaupsréttur niður í það sinn sé tilboði ekki svarað innan þess frests.“

Með vísan til þessa hefur Vestmannaeyjabær nú á formlegan máta birt Síldarvinnslunni  hf. og Magnúsi  Kristinssyni áskorun um að leggja fram forkaupsréttartilboð þar sem söluverð og aðrir skilmálar eru tilgreindir á tæmandi hátt. Þá er og skorað á aðila að leggja fram öll gögn sem máli kunna að skipta til að Vestmannaeyjabær geti tekið afstöðu  til forkaupsréttartilboðsins  innan fjögurra vikna, sbr. 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Verði Síldarvinnslan hf. og Magnús Kristinsson ekki við þessari áskorun fyrir kl. 12:00, föstudaginn 7. september nk., áskilur Vestmannaeyjabær sér rétt, sem forkaupsréttarhafa samkvæmt 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006, að höfða mál fyrir dómstólum á grundvelli 5. mgr. 12. gr. sömu laga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK