Widerøe besta flugfélag Evrópu

Ein af vélum Widerøe flugfélagsins.
Ein af vélum Widerøe flugfélagsins. www.wikipedia.org

Samtök evrópskra flugfélaga hafa útnefnt norska flugfélagið Widerøe, sem sérhæfir sig í innanlandsflugi í Noregi, besta flugfélag Evrópu ársins 2012. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 1991 og hafa verið veitt árlega síðan þá.

Lars Kobberstad, forstjóri Widerøe, sagði í fréttatilkynningu að útnefningin væri mikill heiður fyrir lítið flugfélag og viðurkenning á því mikla starfi sem starfsfólk flugfélagsins hefði innt af hendi. Á heimasíðu Widerøe kemur fram að flugfélagið hafi áður lent í öðru og þriðja sæti í vali dómnefndar en að þetta væri í fyrsta sinn sem það bæri sigur úr býtum.

Dómnefndin sem veitti verðlaunin sagði að frammistaða Widerøe væri merkilega fyrirsjáanleg þó að flugfélagið starfaði í ófyrirsjáanlegum aðstæðum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK