Tæki og tól frekar en föt og húsgögn

Raftækjasala hefur verið nokkuð góð það sem af er ári.
Raftækjasala hefur verið nokkuð góð það sem af er ári. Kristinn Ingvarsson

Íslendingar eru duglegir við að endurnýja raftæki þessi misserin, en á fyrstu 10 mánuðum ársins hefur velta í raftækjaverslun aukist um 7%. Fata- og húsgagnasala heldur þó áfram að vera nokkuð rýr, en sala á rúmum er þar undantekningin og hefur aukist um 10% á árinu. Þetta kemur fram í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka. Segir þar að veltutölur úr smásöluverslun segi svipaða sögu og aðrir mælikvarðar á einkaneyslu og að dregið hafi verið úr henni.

Fataverslun hefur átt erfitt uppdráttar hér á landi síðustu misserin, og var október þar engin undantekning. Á föstu verði, og leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum, dróst velta í fataverslun saman um 12,7% í mánuðinum frá sama tíma í fyrra.

Meiri gangur hefur verið í verslun með raftæki, enda óhægara um vik að flytja þau með sér milli landa en til dæmis föt segir greiningardeildin. Raftækjaverslun tók mikinn vaxtarkipp í fyrra, en í ár hefur vöxturinn verið öllu hægari. Á fyrstu tíu mánuðum ársins óx raftækjaverslun að jafnaði um ríflega 7% frá sama tíma í fyrra, árstíðaleiðrétt á föstu verðlagi.

Húsgögnin virðast mæta afgangi þegar innbú heimilanna eru endurnýjuð þessa dagana. Húsgagnaverslun hefur þannig dregist saman um ríflega 60% undanfarin fimm ár, og mældist samdrátturinn í húsgagnaverslun 6% á milli ára í október, ef leiðrétt er fyrir verðlagsbreytingum og árstíðabundnum þáttum. Landsmenn spara þó síst við sig í svefnherberginu þegar húsgögn eru annars vegar, og hefur sala á rúmum aukist um 10% að raunvirði það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK