SAS ekki komið í örugga höfn

SAS er langt frá því að vera komið í örugga …
SAS er langt frá því að vera komið í örugga höfn, þó að samið hafi verið við starfsfólkið. AFP

Talsverðar breytingar eru nú orðnar á kjörum og vinnutíma flugfreyja og flugmanna flugfélagsins SAS eftir að samningar náðust á milli stéttarfélaga þeirra og félagsins í gær.  En þessir samningar eru einungis hluti viðamikillar áætlunar sem á að bjarga SAS frá hrapi.

Eftir breytingarnar er vinnuvika flugmanna félagsins 47,5 klukkustundir á viku, en getur lengst vegna seinkana eða annarra ófyrirsjáanlegra atburða og má því fara upp í 60 klukkustundir í viku hverri.

Tom Heradstveit, flugstjóri hjá félaginu, sagði í samtali við Stavanger Aftenblad í gær að flugmennirnir þyrftu að vera því viðbúnir að vinna sex af hverjum átta helgum. „Svo mikil vinna um helgar, þegar flestir aðrir í samfélaginu eiga frí, er mikil byrði fyrir fólk.“

Heradstveit segir að launalækkun flugmanna verði um 10%, sem er nokkuð minna en upphaflega hugmyndir SAS hljóðuðu upp á, en þar var talað um 15%.

Frá stofnun SAS, árið 1946, hefur eftirlaunaaldur flugmanna hjá SAS verið 60 ár, en með nýju samningunum er hann 65 ár. Það sama mun gilda um eftirlaunaaldur flugfreyja og -þjóna eftir breytingarnar.

Hyggst snúa vörn í sókn

Nú, þegar samningar við starfsfólk eru komnir í höfn, hyggst SAS snúa vörn í sókn og mun á næstu mánuðum hefja flug á 30 nýja viðkomustaði og verður meirihluti þeirra vinsælir sumardvalarstaðir við Miðjarðarhafið. Þar með fer félagið í beina samkeppni við önnur félög sem hafa sinnt slíku flugi, eins og t.d. norska flugfélagið Norwegian. Það félag hyggst aftur á móti sækja af auknum krafti inn á markað SAS og hefur boðað Bandaríkjaflug á spottprís á komandi mánuðum.

Þá eru uppi hugmyndir um að skipta farþegarými í innanríkisflugi í tvö farrými; almennt og viðskiptafarrými.

Stórfelld eignasala næst á dagskrá

En SAS er langt frá því að vera komið í örugga höfn, þó að samið hafi verið við starfsfólkið.

Það var einungis hluti  björgunaráætlunarinnar 4XNG. Í henni felst einnig sala á ýmsum eignum félagsins og er vonast til að fyrir þær fáist a.m.k. 2,6 milljarðar danskra króna. Mestar vonir eru bundnar við sölu norska flugfélagsins Widerøe og flugþjónustufyrirtækisins SAS Ground Handling.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK