Ekki minni útlán í 9 ár

Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður mbl.is/Golli

Útlán Íbúðalánasjóðs í janúar voru þau minnstu í að minnsta kosti níu ár. Útlánin námu alls 960 milljónum, sem jafngildir 26% samdrætti frá sama mánuði í fyrra. Þar af námu almenn útlán 890 milljónum, en önnur útlán námu 70 milljónum. Uppgreiðslur lána námu um 1,5 milljörðum í janúar, og voru því talsvert umfram útlán líkt og oft hefur verið uppi á teningnum undanfarið. Þetta kemur fram í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka.

Segir þar að hlutdeild sjóðsins í nýjum útlánum hafi minnkað mikið undanfarin misseri. Meðal annars hafi útlán sjóðsins á síðasta ári að meðaltali numið um 1,3 milljörðum á mánuði. Árið 2011 hafi þessi tala verið um 2 milljarðar og árið 2007 voru mánaðarleg útlán sjóðsins tæplega 5,7 milljarðar á mánuði.

Á sama tíma hafa ný íbúðalán farið vaxandi á heildina litið. Samkvæmt gögnum Seðlabanka Íslands nam heildarfjárhæð nýrra íbúðalána að jafnaði 5,5 milljörðum í mánuði hverjum á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs, en árið 2011 voru ný útlán í mánuði hverjum tæplega 4 milljarðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK