Vara við „gullgrafaraæði“ í ferðaþjónustu

Ferðamenn við Sæbraut í Reykjavík.
Ferðamenn við Sæbraut í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands lýsir áhyggjum af því  „gullgrafaraæði“ sem virðist vera að grípa um sig í ferðaþjónustunni. Samkvæmt upplýsingum úr fjölmiðlum má ætla að 3000 ný gistirúm bætist við hér á landi á næstunni. Til að fylla þau rúm þurfum við að fjölga ferðmönnum um 1,1 milljón á ári umfram þær spár sem nú liggja fyrir.

„Fjöldi hótela er á teikniborðinu, án þess að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar um þörfina eða hagkvæmi fjárfestinga. Á sama tíma eykst framboð á eftirlits-og leyfislausri gistingu.  Ársnýting á gistihúsum og hótelum er innan við 50%

Skorað er á fjárfesta og opinbera aðila að staldra við og meta stöðuna út frá raunhæfum forsendum,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK