OR greiddi 10 milljarða króna

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Styrmir Kári

Orkuveita Reykjavíkur hefur gert lánasamning í erlendum gjaldmiðli og áhættuvarnarsamning varðandi vexti við erlenda fjármálastofnun. Markmiðið er að styrkja lausafjárstöðu fyrirtækisins og draga úr áhættu, segir í fréttatilkynningu frá OR.

Vonast er til að ljúka samningum af svipuðum toga við íslenska banka, eins og kom fram í tilkynningu Orkuveitunnar frá 22. mars. Stjórn Orkuveitunnar hefur þegar samþykkt slíka samninga af sinni hálfu og er unnið að frágangi þeirra.

Þá hefur Orkuveitan í dag greitt stærstu afborgun í sögu fyrirtækisins. Hún nam um 67 milljónum evra, sem svara til um 10 milljarða króna. Lánveitandinn er Dexia Crédit Local. Eitt af helstu markmiðum Plansins – áætlunarinnar sem Orkuveitan vinnur eftir – var að mæta þessari afborgun. Upphaflega átti hún að nema um 15 milljörðum en á síðasta ári tókst að fresta greiðslu 5 milljarða. Engu að síður var greiðslan helsta ógnin við greiðsluhæfi Orkuveitunnar. Hún er nú að baki, segir í tilkynningunni.

 Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir í tilkynningunni að í dag séu þáttaskil hjá OR í tvennum skilningi. Í fyrsta lagi hafi Orkuveitan nú greitt hæstu afborgun af lánum sem fyrirtækið stóð frammi fyrir. „Árangur Plansins gerði okkur þetta kleift. Í öðru lagi nýtur Orkuveitan nú trausts á alþjóðlegum lánamarkaði á ný.

Samningarnir um lán og áhættuvarnir sýna að við höfum nú aðgang að erlendum mörkuðum og getum með því styrkt lausafjárstöðu Orkuveitunnar verulega og dregið úr áhættu í rekstrinum.

Orkuveitan – eigendur fyrirtækisins, stjórnendur allir og starfsfólk – hafa sýnt mikla einurð við að fylgja Planinu eftir, sem við lögðum upp með vorið 2011. Þessir samningar eru ávöxtur þeirrar miklu vinnu. Þeir eru mikilvægt skref í þá átt að Orkuveitan verði á ný fjárhagslega traust fyrirtæk, sem rekið er af hagkvæmni og að viðskiptavinir njóti þess,“ segir Bjarni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK