Segja umræðu um gengisbreytingar villandi

„Því er oft haldið fram í opinberri umræðu að styrking gengis krónunnar skili sér seint og illa til neytenda í lækkuðu verði á innfluttum vörum,“ segir í frétt á vef Samtaka atvinnulífsins. „Því sé hins vegar öfugt farið þegar gengi krónunnar veikist, þá séu innflytjendur fljótir að hækka vöruverð. Slíkar staðhæfingar byggja á mikilli einföldun og eru villandi. Látið er í veðri vaka að einungis gengi krónunnar standi að baki verðmyndun innfluttra neysluvara. Litið er fram hjá öðrum mikilvægum þáttum, einkum innkaupsverði í erlendri mynt og innlendum kostnaði. 

Innkaupsverð á innfluttum neysluvörum hækkaði um 4,2% á milli 1. ársfjórðungs 2012 og 1. ársfjórðungs 2013. Á sama tíma hækkaði verð til íslenskra neytenda um 3,7%, þ.e. minna en tilefni var til. Launavísitalan hækkaði enn fremur á sama tímabili um 5,2% en þrátt fyrir það virðist álagning ekki hafa hækkað á tímabilinu.“

Lesa fréttina í heild hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK