Vöruskiptin hagstæð um 28,1 milljarð

mbl.is/Sigurður Bogi

Fyrstu sjö mánuðina 2013 voru fluttar út vörur fyrir 349,6 milljarða króna en inn fyrir 321,5 milljarða króna fob (346,8 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 28,1 milljarði króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 26,4 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því tæpum 1,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 53,8 milljarða króna og inn fyrir 49,3 milljarða króna fob (53,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,5 milljarða króna. Í júlí 2012 voru vöruskiptin hagstæð um 419 milljónir króna.

Verðlækkanir á afurðaverði skýra minni iðnaðarútflutning

Fyrstu sjö mánuði ársins 2013 var verðmæti vöruútflutnings 12,1 milljarði eða 3,3% minna en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52,6% alls útflutnings og var útflutningur þeirra 3,9% minni en á sama tíma árið áður.

Sjávarafurðir voru 43,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,4% minna en á sama tíma árið áður. Samdráttur í útflutningi á iðnaðarvörum og sjávarafurðum er að hluta til vegna verðlækkana á afurðaverði, segir á vef Hagstofu Íslands.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2013 var verðmæti vöruinnflutnings 13,9 milljörðum eða 4,1% minna en á sama tíma árið áður, aðallega vegna minni innflutnings á skipum og flugvélum. Einnig minnkaði innflutningur á eldsneyti en á móti kom aukinn innflutningur fjárfestingavara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK