Hættir sem forstjóri Skipta

Steinn Logi Björnsson.
Steinn Logi Björnsson. mbl.is

Stjórn Skipta hf. og Steinn Logi Björnsson, forstjóri félagsins, hafa komist að samkomulagi um að Steinn Logi láti af störfum en hann hefur gegnt starfi forstjóra frá því í apríl 2011.

Frá þeim tíma hefur verið unnið að rekstrarlegri og fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og endurfjármögnun í framhaldinu. Í sumar lauk þeirri vinnu og er félagið nú vel í stakk búið til að takast á við framtíðina, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Sigríður Hrólfsdóttir, formaður stjórnar Skipta segir félagið á tímamótum, segir í fréttatilkynningu frá félaginu: „Undanfarin ár hafa markast af erfiðu rekstrarumhverfi og verkefnið hefur fyrst og fremst verið að ljúka við endurskipulagningu efnahagsreiknings félagsins. Nú er þeirri vinnu lokið og á þeim tímamótum er það niðurstaða stjórnar að hefja mótun stefnu til framtíðar með opnum hug og hyggst hún auglýsa stöðu forstjóra Skipta lausa til umsóknar. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka Steini Loga fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.“

„Þessi tími hefur verið viðburðaríkur fyrir Skipti. Félagið glímdi við þunga skuldsetningu og mikilvægasta verkefni stjórnar og stjórnenda var að takast á við reksturinn með það að markmiði að ná að endurfjármagna félagið. Í sumar lauk þeirri vinnu og hafa nýir eigendur tekið við félaginu. Við getum öll verið stolt af því hvernig til tókst og ég vil þakka samstarfsfólki fyrir sérlega ánægjulegt samstarf. Nú taka við ný verkefni hjá Skiptum og dótturfélögum og ég óska stjórn og starfsfólki velfarnaðar í þeim verkefnum,“ er haft eftir Steini Loga.

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Skipta mun vera staðgengill forstjóra uns nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK