Hagar hagnast

Verslunarkeðjan Hagkaup er eitt af fyrirtækjum Haga.
Verslunarkeðjan Hagkaup er eitt af fyrirtækjum Haga. mbl.is/Heiðar

Margt bendir til þess að hagnaður verslunarfyrirtækisins Haga á öðrum ársfjórðungi verði sá mesti síðan félagið var skráð á markað í desembermánuði árið 2011.

Í afkomuspá IFS greiningar segir að félagið hafi gefið út jákvæða afkomuviðvörun undir lok seinasta mánaðar þar sem sagði að nettóhagnaður félagsins á fyrri helmingi rekstrarársins yrði ríflega 1,9 milljarðar króna.

Í fyrra nam hann rúmum 1,5 milljörðum króna. Hagnaður félagsins á fyrsta fjórðungi ársins nam 837 milljónum króna og því er það ljóst að félagið hefur náð langt í 1,1 milljarða króna hagnað á öðrum ársfjórðungi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK