Kúba hættir með tvöfalt gjaldmiðlakerfi

Pesó og skipti-pesó verða sameinaðir í einn gjaldmiðil á næstunni …
Pesó og skipti-pesó verða sameinaðir í einn gjaldmiðil á næstunni á Kúbu. AFP

Kúba tilkynnti í dag að það ætli að hætta með 19 ára gamalt tvöfalt gjaldmiðlakerfi í landinu. Kerfið hefur aukið tekjudreifingu í landinu, en þeir sem hafa aðgang að Bandarískum dollurum, t.d. gegnum ferðaþjónustu, fá í raun mun hærri laun en þeir sem fá greitt í venjulegum pesó.

Kerfinu var komið á árið 1994 og með því var sérstökum skipti-pesó komið á fót, en hann er beintengdur við Bandaríkjadal. Þeir sem koma með gjaldeyri inn í landið fá skipti-pesó meðan flestir íbúar Kúbu fá greitt í venjulegum pesó og allar greiðslur til ríkisins eru í síðarnefnda gjaldeyrinum. Fyrir hvern skipti-pesó fást 24 venjulegir pesóar og hefur þetta skapað mikinn mun á milli þeirra sem fá greitt í skipti-pesó og þeirra sem fá það ekki.

Ekki er enn ljóst hvenær samþættingin muni eiga sér stað, en í stærsta blaði Kúbu, Granma, er sagt að ríkisstjórnin hafi þegar komið sér saman um tímaáætlun í því sambandi.

Síðan Raul Castro tók við völdum á Kúbu hefur verið farið í þó nokkrar breytingar á hagkerfi landsins og það fært nær nútímanum. Meðal annars hefur ríkisstjórnin leyft einkaaðilum að fjárfesta í litlum fyrirtækjum í auknum mæli og þá hefur opinber skriffinnska verið skorin niður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK