Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember 2013 var útflutningur fob 55,2 milljarðar króna og innflutningur fob var tæplega 43 milljarðar króna. Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 12,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.