Ferðamönnum fjölgaði um 25,7%

Ferðamenn við Geysi í Haukadal.
Ferðamenn við Geysi í Haukadal. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Um 46 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í nóvember í ár samkvæmt talningu Ferðamálastofu eða um 9.500 fleiri en í nóvember á síðasta ári. Um 25,7% aukningu ferðamanna er að ræða milli ára. Frá því Ferðamálastofa hóf talningu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2002 hefur árleg aukning í nóvember verið að jafnaði 14,3% milli ára. Sveiflur hafa þó verið miklar í brottförum milli ára, segir í frétt Ferðamálastofu.

Þriðjungur ferðamanna frá Bretlandi

Af einstökum þjóðernum voru flestir ferðamenn í nóvember frá Bretlandi (33,4%) og Bandaríkjunum (15,8%). Þar á eftir komu Norðmenn (6,0%), Þjóðverjar (5,1%), Danir (4,2%), Svíar (4,2%), Kanadamenn (3,7%) og Frakkar (3,6%). Samtals voru þessar átta þjóðir með 76% ferðamanna í nóvember.

Af einstökum markaðssvæðum fjölgaði Bretum langmest. Þannig komu 5.286 fleiri Bretar í nóvember ár en í fyrra, 1.973 fleiri N-Ameríkanar, 1.310 fleiri ferðamenn frá Mið- og S-Evrópu og 1.412 fleiri frá öðrum markaðssvæðum. Norðurlandabúum fækkaði hins vegar um 480.

740 þúsund ferðamenn frá áramótum

Frá áramótum hafa 739.328 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 120 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 19,5% milli ára. Um 41% fleiri Bretar hafa heimsótt landið, fjórðungi fleiri N-Ameríkanar, ríflega fjórðungi fleiri frá löndum sem flokkast undir annað og um 14% fleiri Mið- og S-Evrópubúar. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað mun minna eða um 2,4%.

Ferðir Íslendinga utan

Um 29 þúsund Íslendingar fóru utan í nóvember eða um 2.600 fleiri en í fyrra. Frá áramótum hafa um 340 þúsund Íslendingar farið utan eða 3.539 fleiri en í nóvember árið 2012.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK