Greiða fyrirfram 50 milljarða til LBI

Landsbankinn fyrirframgreiðir í dag 50 milljarða til LBI.
Landsbankinn fyrirframgreiðir í dag 50 milljarða til LBI. mbl.is/Hjörtur

Landsbankinn mun í dag greiða fyrirfram inn á skuld sína við gamla Landsbankann, LBI hf. Greiðslan verður innt af hendi í erlendri mynt og jafngildir um 50 milljörðum króna.

Greiðslan gengur inn á höfuðstól skuldabréfanna og lækkar hlutfallslega greiðslubyrði bankans vegna þessarar skuldar sem á að koma til greiðslu á árunum 2014 til 2018, segir í fréttatilkynningu frá Landsbankanum. Fyrsti umsamdi gjalddagi skuldabréfanna er í janúar 2014 og sá síðasti í október árið 2018.

Þá segir í tilkynningunni að sterk lausafjárstaða Landsbankans í erlendri mynt geri honum kleift að lækka skuld sína í erlendri mynt hraðar en samningar kveða á um. „Fjármagnskostnaður bankans mun lækka vegna þessarar fyrirframgreiðslu og um leið verður dregið verulega úr veðsetningu á eignum bankans.“ Lausafjárhlutfall bankans í erlendri mynt muni áfram standast að fullu nýjar kröfur Seðlabanka Íslands.

„Landsbankinn mun áfram þurfa á endurfjármögnun að halda áður en kemur að gjalddögum skuldabréfanna árið 2016. Eins og fram kom í tilkynningu bankans 3. október síðastliðinn á bankinn í viðræðum við LBI hf. um breytingar á skilmálum skuldabréfanna, þar með talið lengingu á lánstíma þeirra,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK