Lýsing og Valitor greiða ekkert

Höfuðstöðvar Valitors. Án 50 milljarða frískuldamarks hefði félagið þurft að …
Höfuðstöðvar Valitors. Án 50 milljarða frískuldamarks hefði félagið þurft að greiða um 130 milljónir vegna bankaskatts.

Án 50 milljarða króna frískuldamarks hefði hækkun sérstaks bankaskatts á skuldir fjármálafyrirtækja komið hlufallslega langþyngst niður á MP banka en sé miðað við fjárhagsupplýsingar á árinu 2012 þá hefði nánast allur hagnaður bankans – um 96% – farið til greiðslu á skattinum. Til samanburðar væri þetta hlutfall almennt í kringum 10–25% hjá öðrum minni fjármálafyrirtækjum sem hefðu að óbreyttu einnig þurft að greiða bankaskattinn.

Um það hefur verið rætt í fjölmiðlum síðustu daga að ákvæði um 50 milljarða króna frískuldamark komi MP banka sérstaklega vel enda lækki bankaskatturinn sem hann þarf að greiða – miðað við 64 milljarða skuldir í árslok 2012 – úr 251 milljónum í 53 milljónir. Sú upphæð nemur engu að síður um 20% af hagnaði ársins 2012. Skuldir bankans höfðu lækkað í 57 milljarða á þriðja fjórðungi 2013.

MP banki er þó fjarri því eina fjármálafyrirtækið sem hafði ríka hagsmuni af því að sett yrði inn frískuldamark. Skylda til að greiða bankaskattinn nær til fjármálafyrirtækja sem hafa starfsleyfi hjá Fjármálaeftirlitinu sem viðskiptabanki, sparisjóður og önnur lánafyrirtæki með leyfi til að taka við innlánum.

Þyrfti að greiða 132 milljónir

Þannig nær skatturinn meðal annars til greiðslukortafyrirtækjanna Valitors og Borgunar. Án frískuldamarksins hefðu félögin, en skuldir þeirra námu 35 milljörðum og 18,5 milljörðum í árslok 2012, þurft að öðrum kosti að greiða 132 milljónir og 70 milljónir við hækkun bankaskattins. Hagnaður fyrirtækjanna á árinu 2012 nam 808 milljónum króna í tilfelli Valitor en 658 milljónir hjá Borgun – og hefði greiðsla á bankaskattinum því numið 11-16% af hagnaði. Með 50 milljarða króna frískuldamarkinu þurfa félögin aftur á móti ekki að greiða neinn skatt.

Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing sleppur sömuleiðis alfarið við bankaskattinn en hefði annars þurft að greiða um hundrað milljónir miðað við 26,5 milljarða skuldir í árslok 2012. Lýsing er að langstærstum hluta í eigu – beint og óbeint – erlendra kröfuhafa föllnu bankanna. Á meðal eigenda er Burlington Loan Management, írsk skúffufyrirtæki í eigu bandaríska vogunarsjóðsins Davidson Kempner. Sjóðir á vegum Davidson Kempner eru auk þess stærstu kröfuhafar í bú Glitnis, meðal þeirra stærstu í Kaupþingi, eiga umtalsverðar kröfur á Landsbankann og eignarhluti í Bakkavör.

MP borgar hlutfallslega mest

Fyrir utan þrjá stóru viðskiptabankanna og fjármálafyrirtæki í slitameðferð er MP banki eina fjármálastofnunin sem greiðir bankaskattinn en hann var hækkaður fyrir skemmstu úr 0,041% í 0,376% og leggst á heildarskuldir fjármálafyrirtækja. Miðað við afkomu ársins 2012 greiðir MP hlutfallslega meira en stóru viðskiptabankabankarnir vegna bankaskattsins.

Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af skattinum aukist um 37,3 milljarða frá 2013 til 2014. Fjármálafyrirtæki í slitameðferð munu þar af greiða 28,3 milljarða. Skatturinn á sem kunnugt er m.a. að fjármagna tillögur stjórnvalda um lækkun verðtryggðra húsnæðislána.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK