Eggert feldskeri heiðraður af IMFR

Eggert Jóhannsson feldskeri heiðraður.
Eggert Jóhannsson feldskeri heiðraður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur heiðraði í dag Eggert Jóhannsson, feldskera, sem iðnaðarmann ársins. Verðlaunin eru veitt þeim iðnaðarmanni sem hefur með verkum sínum vakið athygli fyrir framúrskarandi vinnubrögð og nýjungar sem aukið hafa hróður greinarinnar, bæði heima og erlendis.

Eggert var á nemasamning í tvö ár hjá Jack Marcel feldskera í London. Eftir það hélt hann til Svíþjóðar og lærði við Körsnarsskolan í Tranås og vann þar fyrir Doris Stille, sem var fyrst kvenna til að hljóta meistaratitilinn í feldskurði. Þá lá leið hans til Malmö þar sem hann hóf störf fyrir Lars åke Hankell feldskurðarmeistara.

Árið 1977 sneri hann  aftur til Íslands og stofnaði fljótlega verkstæði og verslun í Reykjavík. Fyrsta flíkin sem hann hannaði og seldi hér á landi var mokkajakki úr lambskinni og var hann í eigu Rannveigar Guðmundsdóttur, fyrrverandi alþingismanns. Þessi stórglæsilega flík er nú í eigu Þjóðminjasafnsins og er (eða verður) til sýnis þar.

Einungis ári eftir að hann flytur heim, hóf hann að framleiða fyrir alþjóðlegan markað í kjölfar stórrar pöntunar frá Noregi. Síðan þá hafa verk hans vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi  og má þar nefna vörulínur eins og Born again, surf and turf og ocean leather sem eru dæmi um fulla nýtingu náttúrulegra hráefna sem eru sérvalin og bera vott um fallega hönnun, gott handbragð og fjölbreytni í feldum.  

Hann ber mikla virðingu fyrir náttúrunni og  hefur að leiðarljósi samspil manns og náttúru í sköpun sinni. Síðastliðinn áratug hefur hann verið virkur meðlimur í alþjóðasamtökum loðskinnaiðnaðarins og setið þar í nefndum sem fjalla um náttúru og dýravernd.

Fyrir þremur árum hóf Eggert samstarf við Anderson og Sheppard um smávöru en framleiðir og hannar nú alla skinnavöru fyrir Anderson og Sheppard en þeir hafa í rúma öld verið í fremstu röð klæðskera Lundúna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK