Mesti hagnaður í sögu Varðar

Guðmundur Jóhann Jónsson forstjóri Varðar er stoltur af árangri síðustu …
Guðmundur Jóhann Jónsson forstjóri Varðar er stoltur af árangri síðustu ára. Friðrik Tryggvason

Hagnaður tryggingafélagsins Varðar nam 506 milljónum á síðasta ári og hækkaði úr 431 milljón árið áður. Þetta er mesti hagnaður í sögu félagsins. Iðgjöld ársins voru 4.974 milljónir og hækkuðu um rúmlega 360 milljónir milli ára. Tjón numdu 3.507 milljónum og jukust um tæplega 200 milljónir milli ára.

Heildareignir félagsins í lok ársins voru 9.663 milljónir og jukust um rúmlega 600 milljónir milli ára. Eigið fé er 3.019 milljónir og jókst um tæplega hálfan milljarð og er eiginfjárhlutfall 31,6%. Arðsemi eigin fjár var 19% á síðasta ári.

Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, segist í tilkynningu vera stoltur af árangri félagsins á undanförnum árum. „Rekstur félagsins gekk vel á síðasta ári og er afkoman sú besta í sögu félagsins, sem er sérlega ánægjulegt. Samsetta hlutfallið heldur áfram að lækka,  eiginfjárhlutfallið að styrkjast og gjaldþolið að aukast. Allt þetta skilar sér í sterkara félagi og góðri arðsemi eigin fjár en hún var hæst hjá Verði á síðasta ári af öðrum vátryggingafélögum á Íslandi. Þá hefur viðskiptavinum fjölgað jafnt og þétt ár frá ári sem hefur skilað sér í aukinni hlutdeild á tryggingamarkaði. Ég þakka starfsfólki félagsins þá miklu umbreytingu sem orðið hefur á félaginu á fáeinum árum. Við erum stolt af þessum góða árangri,“ segir Guðmundur.

Vörður tryggingar hf. er í eigu færeyska bankans BankNordik (áður Føroya Banka).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK