Verðbólgumarkmið í höfn

mbl.is/Styrmir Kári

Verðbólgan mældist undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands nú í marsmánuði, annan mánuðinn í röð, og er útlit fyrir að hún verði á svipuðum slóðum fram eftir ári.

Þetta segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar hækkaði vísitala neysluverðs (VNV) um 0,24% í mars frá fyrri mánuði. Mælingin var lítið eitt undir spá greiningardeildarinnar, 0,3% hækkun, en opinberar spár voru á bilinu 0,1% - 0,4% hækkun.

Verðbólga síðustu tólf mánaða mælist nú 2,2%, en var 2,1% í febrúar. Raunar er tólf mánaða taktur verðbólgu án húsnæðis 0,8%, og því er drjúgur meirihluti verðbólgunnar nú til kominn vegna hækkandi íbúða- og leiguverðs, að því er fram kemur í umfjöllun greiningardeildarinnar.

Útsölulok vógu til hækkunar

„Að vanda vógu útsölulok til hækkunar VNV í mars. Verð á fötum og skóm hækkaði um 3,9% milli mánaða í mars, sem hefur áhrif til um 0,19% hækkunar VNV. Í heild vó verðhækkun vegna útsöluloka til 0,22% hækkunar VNV, sem er aðeins meira en við bjuggumst við,“ segir greiningardeildin.

„Á móti hækkun á fötum lækkaði verð á raftækjum um 0,6% milli mánaða sem kom okkur óvart, en sú lækkun stafar eflaust af styrkingu á gengi krónunnar og jafnvel gætir hér áhrifa af aukinni samkeppni verslana hér á landi við erlendar netverslanir,“ bætir hún við.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK