Afkoma bandaríska netrisans Yahoo var betri en greinendur höfðu búist við en félagið skilaði hagnaði upp á 312 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 35 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins.
Hagnaðurinn dróst hins vegar saman um tuttugu prósent frá því á fyrsta ársfjórðungi í fyrra, en það kom ekki að sök því hlutabréf félagsins snarhækkuðu í verði þegar markaðir opnuðu. Greinendur á fjármálamarkaði höfðu reiknað með mun lægri hagnaði.
Marissa Mayer, forstjóri Yahoo, sagði að afkoman væri til marks um góðan vöxt í kjarnahluta félagsins en hún býst fastlega við því að tekjurnar muni stóraukast á næstu misserum, að því er segir í frétt Wall Street Journal.
Fjárfestar voru ánægðir með uppgjörið en hlutabréf Yahoo hækkuðu um átta prósent í verði þegar markaðir opnuðu.
Yahoo er stór hluthafi í kínverska netrisanum Alibaba sem stefnir á hlutabréfamarkað innan skamms. Alibaba var stofnað árið 1999 og er nú eitt stærsta netverslunarfélag heims. Í dag starfa yfir tuttugu þúsund manns hjá versluninni en upphaflega voru starfsmennirnir einungis átján talsins.