Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað starfssvæði Eykon

Fulltrúar Eykon, CNOOC og Petoro ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra …
Fulltrúar Eykon, CNOOC og Petoro ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra og Guðna Á. Jóhannessyni orkumálastjóra. Ljósmynd/Petra Steinunn

Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað verða starfssvæði landþjónustu Eykon Energy vegna fyrirhugaðrar olíuleitar og –vinnslu á Drekasvæðinu samkvæmt ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins. 

Í faglegri úttekt sem gerð var á staðarvali fyrir þjónustumiðstöð vegna fyrirhugaðrar starfsemi á Drekasvæðinu kom fram að Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað hefðu í sameiningu staðið best að vígi hvað varðar aðstöðu og samfélagslega innviði, að því er segir í fréttatilkynningu.

„Við erum afar ánægð með þessa ákvörðun og hlökkum til að vinna með fólkinu í Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði að frekari uppbyggingu á svæðinu. Við höfum þegar hafið vinnu við stofnun félags með heimamönnum til að halda utan um starfsemina,“ er haft eftir Haukur Óskarssyni, framkvæmdastjóra iðnaðar hjá Mannviti, og stjórnarmaður í Eykon Energy.

Hann segir að svæðið sé ákaflega vel staðsett og vel í stakk búið til að takast á við krefjandi þjónustu á borð við þá starfsemi sem felst í olíuleit og vinnslu á fjarlægum hafsvæðum.

Eykon Energy ehf. á í samstarfi við kínverska orkufyrirtækið CNOOC og norska olíufélagið Petoro og fengu fyrirtækin leyfi til olíuleitar og –vinnslu á Drekasvæðinu 22. janúar síðastliðinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK