Engar eignir fundust í búi Hótels Egilsstaða en skiptum á búinu lauk fyrir skemmstu. Lýstar kröfur í búið námu rúmum 103 milljónum króna. Í frétt Austurfréttar um málið segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta í nóvember í fyrra en skiptum hafi lokið í vor.
Hótel Egilsstaðir var með rekstur í Valaskjálf á Egilsstöðum.
Sjá ítarlega frétt Austurfréttar um málið hér.