Líkt og undanfarin sumur býður Kringlan ferðamönnum upp á fríar sætaferðir til og frá miðbænum í sumar.
Þetta er fjórða árið í röð sem Kringlan býður upp á þessa þjónustu, en rúta fer frá Upplýsingamiðstöð ferðamanna við Aðalstræti 2 og stoppar við bílastæði Kringlunnar. Í fyrrasumar hóf Smáralind einnig að bjóða upp á þessa þjónustu og hefur hún einnig fest í sessi þar. Farnar eru nokkrar ferðir á dag.
Rekstraraðilar verslana í verslunarmiðstöðvunum tveimur virðast ánægðir með framtakið og segja það auka flæði fólks í húsinu, að því er fram kemur í Morgunlaðinu í dag.