Hagnaður þýska bankans Deutsche Bank dróst saman um 29% á öðrum fjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður bankans nam alls 237 milljónum evra, sem jafngildir um 37 milljörðum króna, og var langt undir væntingum greinenda.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's lækkaði jafnframt lánshæfiseinkunn bankans úr A2 í A3 og sagði að „mótstraumur í tekjum og gjöldum“ myndi verða dragbítur á afkomu Deutsche Bank fram eftir næsta ári.