Engar eignir fundust í þrotabúi eignarhaldsfélagsins Veisluþjónustu viðskiptalífsins sem sá meðal annars um veisluþjónustu fyrir Kaupþing á árunum fyrir hrun bankans. Lýstar kröfur í búið námu rúmlega 124 milljónum króna, að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu.
Fyrirtækið var stofnað árið 2000 en ársreikningar þess hafa ekki verið birtir. Það var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur í aprílmánuði og lauk gjaldþrotaskiptunum í byrjun júlímánaðar.
Fram kom í DV á sínum tíma að félagið hafi stefnt Kaupþing banka vegna skulda fyrir veisluhöldin. Voru eigendur félagsins ósáttir við skuldauppgjör bankans.