Arctic lögmenn er ný lögmannsstofa sem tekið hefur til starfa að Skeifunni 17 í Reykjavík. Með stofnun stofunnar sameinast þrjár lögmannsstofur, Fullrétti lögfræðiþjónusta, RG lögmenn og HH lögfræðiþjónusta.
Sigurður Árnason, framkvæmdastjóri stofunnar, segir í tilkynningu, að Arctic lögmenn leggi áherslu á að bjóða aðgengilega og vandaða þjónustu fyrir einstaklinga í skuldamálum, fjölskyldumálum, fasteignamálum og bótamálum. Þá býður stofan fyrirtækjum alla almenna þjónustu og ráðgjöf með sérstaka áherslu á að kostnaður viðskiptavina sé fyrirsjáanlegur.