Landsbankinn kynnti í dag um uppgjör og afkomu bankans á fyrri helmingi ársins 2014. Nam hagnaðurinn fyrir skatta 14,9 milljörðum króna. Til samanburðar var hagnaður bankans á sama tímabili árið 2013 15,5 milljarðar.
Á öðrum ársfjórðungi var bókfærður 4,9 milljarða hagnaður vegna sölu Landsbankans á 9,9% eignahlut í Framtakssjóði Íslands og öllum hlut bankans í IEI slhf.
Vaxtatekjur bankans lækkuðu um 10% frá fyrra ári og hreinar þjónustutekjur stóðu í stað. Rekstrarkostnaður hélst nánast óbreyttur að raungildi milli tímabilanna þegar tekið hefur verið tillit til hlutabréfatengdra greiðslna til starfsmanna á fyrra ári. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 12,8% borði saman við 13,5% fyrir sama tímabil á árinu á undan.
„Rekstrarafkoma og fjárhagsstaða Landsbankans er með ágætum. Virðisaukning eigna hefur staðið undir óvenjulega stórum hluta tekna á árinu, en á móti er vaxtamunur töluvert lægri en á fyrra ári. Samanlagt hefur frá stofnun bankans orðið virðisrýrnun á útlánum hans,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri, í tilkynningu.
Segir í uppgjörinu að horfur í rekstri bankans séu góðar, en þó sé enn óvissa vegna yfirstandandi dómsmála.