Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta nam 6,4 milljörðum króna á öðrum fjórðungi ársins samanborið við 6,6 milljarða á sama tíma í fyrra. Á fyrsta ársfjórðungi nam hagnaðurinn 14,7 milljörðum króna, en 11,2 milljörðum á sama tímabili 2013.
Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 14,5% í ársfjórðunginum, samanborið við 17,4% í fyrra, og alls 16,9% á fyrri hluta ársins, þrátt fyrir að eigið fé bankans hafi hækkað um 14% á milli ára úr 156 milljörðum króna í 178 milljarða króna.
Eiginfjárhlutfall bankans var 29,3% í lok júnímánaðar, borið saman við 30,3% í lok marsmánaðar, að því er segir í tilkynningu.
Hreinar vaxtatekjur voru 6,9 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi og vaxtamunur 3,1%, sem er í takt við langtímaáætlanir bankans.
Þá voru hreinar þóknanatekjur voru 2,8 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi og hækkuðu þær um 5,5% á milli ára. Aukninguna má að mestu rekja til markaða, eignastýringar og dótturfélaga, segir í tilkynningunni.
Kostnaðarhlutfall bankans var 56,0%, borið saman við 58,8% á öðrum ársfjórðungi í fyrra, og má rekja lækkunina til fækkunar starfsmanna og áframhaldandi kostnaðaraðhalds.
Í tilkynningunni kemur fram að frá stofnun bankans hafi um 36.000 einstaklingar og um 4.200 fyrirtæki fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema 561 milljarði króna.
Þá hefur öllum stórum málum sem lúta að fjárhagslegri endurskipulagningu nú verið lokið. LPA hlutfallið var 7,3%, en 7,8% í mars 2014, og þau smærri mál sem eftir standa munu hvert fyrir sig hafa lítil áhrif á hlutfallið. Hlutfall vanskila umfram 90 daga var 3,5%.
Heildareignir bankans voru 908 milljarðar króna, sem er 3% aukning frá lokum fyrsta ársfjórðungs. Lán til viðskiptavina námu 604 milljörðum króna og hækkuðu um 7% á milli fjórðunga.
Einnig jukust heildarinnlán í 543 milljarða króna úr 530 milljörðum króna í lok mars 2013, sem má rekja til eðlilegra sveiflna í innlánum frá viðskiptavinum og fjármálastofnunum.