Orange Project ehf. og Reginn fasteignafélag hafa gert með sér samning um leigu á húsnæði undir skrifstofu- og fundahótel í Ármúla 6. Orange Project býður upp á leigu á skrifstofum og fundarherbergjum.
Mun Reginn vísa minni fyrirtækjum og einstaklingum sem eru á höttunum eftir aðstöðu á rými Orange Project í Ármúla.
„Við ákváðum að semja við Regin vegna stærðar þeirra og sveigjanleika. Stærð eignasafns þeirra gefur okkur stöðugleika og Reginn er ákjósanlegur samstarfsaðili fyrir okkur með framtíðarstækkun í huga,“ segir Tómas Hilmar Ragnarsson, framkvæmdastjóri Orange Project.