Ísland hefur í fjögur ár í röð horft fram á litlar breytingar á stöðu sinni á lista yfir samkeppnishæfni þjóða en í september árið 2008 vermdi Ísland 20. sæti og 26. sæti árið 2009. Ísland situr nú í 30. sæti og færist upp um eitt sæti frá árinu 2013.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) sem birt var í gær. Mælingar á samkeppnishæfni þjóða byggja á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda á vinnumarkaði í 144 löndum en Nýsköpunarmiðstöð Íslands aflar gagna hérlendis fyrir Alþjóðaefnahagsráðið sem síðan sér um úrvinnslu þeirra.
Mennta- og heilbrigðismál styrkur Íslands
Í umsögn Alþjóðaefnahagsráðsins segir að Ísland færist upp um eitt sæti vegna umbóta á sviði þjóðhagfræðilegra þátta og tilslakana á fjármálamarkaði. Þrátt fyrir erfiðleika síðustu ára á þessum sviðum, þá heldur Ísland áfram að njóta nokkurra sterkra stoða samkeppnishæfni og færist samkeppnisstaða landsins því til betri vegar.
Samkeppnishæfni Íslands byggir ekki síst á góðri stöðu heilbrigðis-og menntamála en einnig er bent á að nýsköpun og áhersla á tækninýjungar sé mikill drifkraftur í íslensku efnahagslífi og leiði til aukinnar framleiðni á mörgum sviðum. Þessi styrkleiki er svo studdur af skilvirkum vinnumarkaði og þróuðum og sterkum innviðum.
„Mörgu ber að fagna í þessari niðurstöðu sem ef til vill markar að viðsnúningur geti nú blasað við í þessum efnum. Mikið verk er framundan að efla stöðu landsins. Ég fagna því að nýsköpunarumhverfi okkar nýtur viðurkenningar og hlakka til að hefja sóknina á ný til þess að endurheimta það sem glatast hefur“ segir Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, aðspurður um niðurstöðu skýrslunnar á vef Nýsköpunarmiðstöðvar.
Veikur fjármálamarkaður og veik efnahagsstjórn
Eins og undanfarin ár eru veikleikarnir enn sem fyrr veikur fjármálamarkaður, veik efnahagsstjórn, ónæg framleiðni á ýmsum sviðum og smæð heimamarkaðar. Núverandi staða gjaldeyrisviðskipta og aðgangur að fjármagni eru meðal margra þátta sem draga úr samkeppnishæfni Íslands.
„Auðvitað er staða Íslands á þessum lista ekki ásættanleg. Það að standa í stað er ekki valkostur því að ef okkur á að takast að efla velferð og bæta hér lífskjör þá verðum við einfaldlega að efla nýsköpun á öllum sviðum atvinnulífs og stjórnsýslu. Eftir að hafa heimsótt fjölda fyrirtækja á undanförnum mánuðum veit ég að hugmyndirnar og nýsköpunarkrafturinn eru til staðar – núna ríður á að virkja hann enn frekar. Ríkisstjórnin vinnur að því hörðum höndum að styðja við nýsköpunarstarf, m.a. með því að verja auknu fé í Tækniþróunarsjóð, einfalda regluverk og finna leiðir til að afnema gjaldeyrishöftin,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, á vef Nýsköpunarmiðstöðvar.
Sviss vermir efsta sætið á listanum sjötta árið í röð og Singapore heldur öðru sæti. Bandaríkin, sem lengi trónuðu á toppnum, eru nú í þriðja sæti og Finnland í því fjórða. Þýskaland fellur um eitt sæti og er í því fimmta og Japan fer upp um þrjú sæti og í það sjötta. Þar á eftir koma svo Hong Kong, Holland og Bretland en í tíunda sæti er Svíþjóð sem fellur um fjögur sæti frá fyrra ári.