Tap varð af rekstri Vífilfells á síðasta ári að fjárhæð tæplega 93 milljónir króna samanborið við hagnað upp á 190,5 milljónir króna árið áður.
Drógust sölutekjur félagsins saman um rúmlega 250 milljónir króna og námu samtals 10,8 milljörðum á árinu 2013.
Rekstarhagnaður Vífilfells fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) minnkaði um meira en helming á liðnu ári og var rétt undir 400 milljónum króna. Arðsemi eiginfjár var neikvæð um 2,3% á síðasta ári borið saman við arðsemi upp á 4,6% á árinu 2012.