Launavísitala í ágúst 2014 er 487,4 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,3%. Vísitala kaupmáttar launa í ágúst 2014 er 118,2 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,9%.
Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar segir einnig að í launavísitölu ágústmánaðar gæti áhrifa kjarasamnings ríkis og framhaldsskólakennara annars vegar og sveitarfélaga við grunnskólakennara hins vegar frá 2. ársfjórðungi 2014.