Alls eru tæplega 4,5 milljónir Spánverja án vinnu en atvinnuleysi jókst lítillega á Spáni í september frá ágústmánuði. Skýrist það af því að aðalferðamannatímanum er að ljúka.
Í tilkynningu frá vinnumálaráðuneyti Spánar segir að aukningin milli ágúst og september hafi ekki verið jafn lítil og í ár síðan árið 2007.
Á einu ári hefur atvinnulausum fækkað um 277 þúsund á Spáni.
Á Spáni mælist atvinnuleysi um 24% og á evrusvæðinu er atvinnuleysið einungis meira í Grikklandi.