Verkfallið kostaði 500 milljónir evra

AFP

Verkfall starfsmanna franska flugfélagsins Air France í síðasta mánuði kostaði félagið 500 milljónir evra, 76,4 milljarða íslenskra króna. Verkfallið stóð yfir í tvær vikur. Þetta kom fram í máli fjármálastjóra félagsins, Pierre-Francois Riolacci, í morgun.

Það voru flugmenn Air France sem fóru í verkfall vegna þess að þeir óttast um stöðu sína. Ástæðan er áætlanir Air France að auka umsviif dótt­ur­fé­lags síns, lággjalda­flug­fé­lags­ins Transa­via. Það gæti þýtt að störf flugmanna færðust í verk­töku og flug­mönn­um sem þiggi lægra kaup yrðu boðin störf franskra flug­manna Air France.

AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK